SKÁLDSAGA

Arfleifð frumskógarins

Arfleifð frumskógarins eftir Sigurð Róbertsson sem kom  fyrst út árið 1972 hlaut góðar viðtökur og þótti þá ágætt innlegg í þann tíma, en í kynningartexta sem fylgdi bókinni má finna eftirfarandi lýsingu:  ,,Arfleifð frumskógarins fjallar um nútímamanninn í umróti tuttugustu aldar og viðleitni hans til að fylgjast með hamskiptum tímans.“ Sigurður var kunnur rithöfundur á sínum tíma og hlaut ýmsar viðurkenningar á löngum ritferli, ekki síst fyrir leikrit sín, en af þekktum leikritum hans má nefna Uppskera óttans (1955) og Mold (1966). Arfleifð frumskógarins var fimmta skáldsaga Sigurðar en áður höfðu komið út sögurnar, Augu mannanna (1946), Vegur allra vega (1949), Bóndinn í Bráðagerði (1954) og Gróðavegurinn (1956).  Sigurður lést árið 1996.


HÖFUNDUR:
Sigurður Róbertsson
ÚTGEFIÐ:
2013
BLAÐSÍÐUR:
bls. 433

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :

  • ...